12. september 2024

Ólympíuhlaup ÍSÍ

Ólympíuhlaup ÍSÍ

Þann 11. september fór fram Ólympíuhlaup ÍSÍ í Akurskóla. Nemendum var safnað saman við íþróttahúsið og var ræst af stað þaðan kl. 10.00. Hver hringur er 2,5 km og fá þeir sem fara 4 hringi eða fleiri viðurkenningaskjal fyrir frábæra frammistöðu og seinna verða veitt verðlaun fyrir þann árgang sem fór flesta samanlagða kílómetra á hverju stigi.

Veðrið lék við okkur í dag og voru nemendur duglegir og kappsamir.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla