Tengiliðir farsældar

Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna tóku gildi þann 1. janúar 2022. Meginmarkmið laganna er að skapa umgjörð sem stuðlar að því að börn og foreldrar, sem á þurfa að halda, hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. 

Í lögunum kemur fram að börn undir 18 ára aldri og fjölskyldur þeirra skuli hafa aðgang að tengilið þjónustu í þágu farsældar barns eftir því sem þörf krefur. Hlutverk tengiliðar er: 

  • að hafa hagsmuni barns að leiðarljósi
  • að rækja hlutverk sitt í samstarfi og samráði við foreldra og barn
  • að veita upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns
  • að aðstoða við að tryggja aðgang að frummati á þörfum barns – eyðublað frá BOFS
  • að skipuleggja og fylgja eftir samþættingu fyrsta stigs þjónustu í þágu farsældar barns
  • að koma upplýsingum til sveitarfélags um þörf fyrir tilnefningu málstjóra
  • að taka þátt í starfi stuðningsteymis eftir því sem við á

Þegar barn er við nám í leik-, grunn-, eða framhaldsskóla er tengiliður þjónustu í þágu farsældar barns starfsmaður skólans þar sem barnið er við nám eða leik.

Sjá nánar um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna á vef Reykjanesbæjar.


Nokkrir gagnlegir tenglar:


Tengiliðir farsældar í Akurskóla:

Arnar Freyr Smárason, deildarstjóri Lindar

Elín Njálsdóttir, deildarstjóri sérkennslu

Guðrún Gunnarsdóttir, deildarstjóri í 6. - 10. bekk

Katrín Jóna Ólafsdóttir, deildarstjóri í 1. - 5. bekk

Þormóður Logi Björnsson, aðstoðarskólastjóri

NN, náms- og starfsráðgjafi

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla