Aðstoðarskólastjóri
Næsti yfirmaður er skólastjóri.
Aðstoðarskólastjóri er staðgengill skólastjóra og gengur því undir þeim kringumstæðum inn á verk- og starfssvið skólastjóra, tekur ennfremur þátt í daglegu samstarfi við skólastjóra um ábyrgð á stjórnun skólans og faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar skólastarfsins.
Helstu verkefni:
- Stjórnun daglegra starfa kennara, stuðningsfulltrúa og skólaliða.
- Er yfirmaður frístundaskólans, Akurskjóls.
- Skipulag námsefnis, kennsluhátta, kennsluáætlana og námsmats.
- Skólaþróun og stefnumörkun skólastarfsins.
- Setur upp endurmenntunaráætlun fyrir starfsmenn og kennara skólans.
- Tekur starfsmannasamtöl ásamt skólastjóra.
- Tekur þátt í mati á skólastarfi.
- Framkvæmd markmiða Aðal- og skólanámskrár.
- Stjórnun agamála og ástundunar nemenda.
- Annast innkaup og pantanir námsefnis.
- Annast, ásamt deildarstjóra, undirbúning og framkvæmd samræmdra prófa.
- Að skipuleggja og stjórna undirbúningi og framkvæmd ferðalaga, árshátíða og félagslífs í samráði við starfsmenn skólans.
- Að fylgjast með mætingum nemenda í samráði við skólastjóra, starfsmenn, forráðamenn og nemendur.
- Skipulag og framkvæmd valgreina í 8. – 10. bekk
- Að fylgjast með nýjungum á sviði kennsluhátta og námsefnis.
- Að annast útgáfu bekkjarnámskráa.
- Að stjórna vinnu við skólanámskrá.
- Stjórna nemendaverndarráðsfundum.
- Vinna að úrlausnum og skipulagi vegna sérkennslu og stuðningskennslu í samráði við verkefnastjóra stoðþjónustu.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.