23. janúar 2025

Skólaþing í Akurskóla

Skólaþing í Akurskóla

Starfsmaður skólaþings Alþingis kom til okkar í heimsókn á miðvikudaginn síðastliðinn og leiddi nemendur 10. bekkjar í gegnum starfshætti þingheims við vinnslu laga.

Nemendurnir fengu tækifæri til að setja sig í spor þingmanna með því að leiða fyrir fram ákveðin málefni sem fyrir þá voru lögð til lykta á þingflokksfundum, nefndarfundum og þingfundum. Jafnframt hlustuðu nemendur á og mátu rök sérfræðinga sem kallaðir voru til sem veittu þingmönnum ráðgjöf. Þannig var ætlunin að veita innsýn í sambandið milli atburða í samfélaginu, skoðanamyndunar, pólitískra ákvarðana og starfa Alþingis og sýna áhrif almennings, sérfræðinga, fjölmiðla og hagsmunaaðila á löggjafarstarfið. Nemendur áttu að komast að lýðræðislegri niðurstöðu með því að hlusta á og meta rök og álit annarra og skiptast á skoðunum.

Nemendum var skipt í flokka og fengu ákveðin hlutverk og sjónarmið úthlutað og stóðu sig virkilega vel í að koma fram og tjá skoðanir sínar og flokksins sem þeir voru fulltrúar fyrir. 

Myndir í myndasafni skólans. 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla