Samtalsdagur 29. janúar
Miðvikudaginn 29. janúar er samtalsdagur í Akurskóla.
Foreldrar/forráðafólk bóka viðtal við umsjónarkennara í gegnum Mentor. Opnað hefur verið fyrir bókanir og geta foreldrar/forráðafólk því bókað sín viðtöl. Nemendur eiga að mæta með foreldrum/forráðafólki í viðtalið.
Viðtöl fara fram í heimastofum nemenda en listi með stofuskipan er að finna á upplýsingaskjá í skólanum. Fag-, list- og verkgreinakennara eru einnig til viðtals þennan dag og best er að koma á skrifstofu skólans og óska eftir viðtali við þá kennara.
Viðtölin verða nemendastýrð sem þýðir að nemendur munu leiða samtalið og kynna foreldrum sínum það sem þeir hafa verið að læra og vinna að í skólanum. Þetta gefur nemendum tækifæri til að sýna ábyrgð á eigin námi og styrkir samskipti milli nemenda, foreldra og kennara.
Forráðafólk nemenda í 3., 6. og 9. bekk eru beðnir um að svara viðhorfskönnun eftir viðtalið og biðjum við þá forráðamenn um að staldra við og svara könnun á spjaldtölvum sem verða við stofur hjá 3., 6. og 9. bekk. Niðurstöður viðhorfskönnunar eru mikilvægur hluti í sjálfsmati skóla og notum við svörin til að gera gott skólastarf enn betra.
Frístundaheimili í Akurskóla fyrir nemendur í 1.-4. bekk er opið á samtalsdaginn frá kl. 8:20 til kl. 16:15 fyrir börn sem þar eru skráð.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.